Bóka myndatöku

Viltu eiga fallegar og faglegar myndir frá tímanum þínum á Tenerife? ❤️

Við bjóðum upp á myndatökur með atvinnuljósmyndara sem kemur á þann stað sem þið veljið og sér um að fanga einstök augnablik á náttúrulegan og fallegan hátt. Myndirnar eru síðan afhentar í hárri upplausn.

Myndatakan hentar fullkomlega fyrir pör, fjölskyldur, óléttumyndir, sérstök tilefni eða bara til að varðveita fallegan dag í sólinni.

Ljósmyndarinn hefur sterka tengingu við bæði Ísland og Tenerife. Hann er fæddur á Kúbu, bjó í meira en 10 ár á Íslandi og hefur nú búið á Tenerife síðan 2022 með fjölskyldu sinni. Hann talar spænsku, ensku og aðeins íslensku.

Verð er 100€ á klukkustund og lágmarkið er 2 tímar.

Hafðu samband við okkur hér að neðan til að fá frekari upplýsingar eða bóka myndatöku.

Senda fyrirspurn