B on the rocks í Alcalá, geggjaður íslenskur veitingastaður á Tenerife ![]()
![]()
![]()
Við hjá hjá www.golfontenerife.com í samstarfi við Tene Bíllinn erum afar ánægð að kynna nýtt og spennandi samstarf við B on the rocks í Alcalá á vesturhluta Tenerife! Sérstakt tilboð fyrir viðskiptavini Tenebílsins ![]()
B on the rocks er glæsilegur „vintage“ veitingastaður í fallega strandbænum Alcalá og er í eigu Íslendingsins Péturs Sigurðssonar, en staðurinn hefur byggt sér upp frábært orðspor meðal bæði heimamanna og ferðamanna og er hvað þekktastur fyrir fyrsta flokks mat, góða þjónustu og einstakt andrúmsloft.
B on the rocks sameinar franska matargerð í bland við áhrif frá Íslandi og Miðjarðarhafinu í fallegu og rólegu umhverfi þar sem áhersla er lögð á gæði, ferskt hráefni og góða upplifun. Þar er boðið upp á fjölbreyttan matseðil, vandlega valin vín og æðislega kokteila ![]()
![]()
Við höfum sjálf farið nokkrum sinnum að borða á B on the rocks og mælum heilshugar með staðnum. Í hvert skipti hefur maturinn verið algjörlega fyrsta flokks og umhverfið alltaf jafn fallegt og notalegt, en veitingastaðurinn er staðsettur í sjarmerandi kanarísku húsi við fallegt torg í hjarta Alcalá.
Eitt af því sem okkur finnst sérstaklega skemmtilegt er að á matseðlinum má m.a finna íslenskan þorsk
ásamt ljúffengum sjávarréttum, hörpuskel, humarsalati og laxi, en fyrir kjötunnendur er boðið upp á filet mignon, entrecôte, iberico svínakjöt, nýsjálenskar lambakótilettur og hægeldaðar nautakinnar. Einnig eru veganréttir og barnamatseðill í boði, svo allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Og svo má auðvitað ekki gleyma eftirréttunum, þar á meðal frægu súkkulaði Lava Cake kökuna sem hefur notið mikilla vinsælda meðal gesta.
B on the rocks er eins og áður sagði staðsettur í Alcalá, sem er um 20-25 mínútna akstur frá Adeje, sem gerir staðinn að frábærum valkosti fyrir þá sem vilja gera sér dagamun og borða góðan mat í dásamlegu umhverfi, aðeins út fyrir þessi helstu túristasvæði ![]()
Sérkjör fyrir viðskiptavini Tene Bílsins ![]()
Allir sem bóka akstur með okkur á B on the rocks fá 15% afslátt af matseðlinum.
(ATH – Afsláttur gildir aðeins ef bókaður er akstur með Tenebílnum
)
Við sjáum um aksturinn fram og til baka svo þú getir slakað á og notið kvöldsins/dagsins án þess að hafa áhyggjur af akstri eða bílastæðum.
Sendu okkur póst á tenerifebill@gmail.com fyrir verð, bókanir eða nánari upplýsingar.
Opnunartími B on the Rocks í sumar er frá þriðjudegi til laugardags frá kl: 18:00 – 23:30 (lokað á sunnudögum & mánudögum)







