Los Palos Golf er lítill en einstaklega vel hannaður par-3 golfvöllur á suðurhluta Tenerife. Þetta er völlur sem margir vanmeta – en þeir sem spila hann átta sig fljótt á því að hér snýst allt um nákvæmni, stuttaspil og góðar ákvarðanir. Fullkominn sem æfingahringur, “warm-up” eða afslappað golf í sól og blíðu.
Yfirlit vallarins
Los Palos er 9 holu par-3 völlur (par 27), staðsettur rétt fyrir ofan Costa Adeje. Þrátt fyrir stutta holulengd er layoutið fjölbreytt og vel úthugsað, með vel varðar flatir, vatn í leik og snjallar sjónblekkingar.
Þetta er ekki „pitch & putt“ í hefðbundnum skilningi – hér þarf að slá alvöru högg, velja rétta kylfu og treysta á gott stuttaspil. Margir betri golfarar nota Los Palos markvisst til að skerpa á wedge-leik og puttingi.
Hvað gerir Los Palos Golf sérstakan?
- Par-3 völlur sem er alvarlega hannaður
- Frábær æfing fyrir wedge-leik og nákvæmni
- Vatn og gryfjur í leik sem refsa kæruleysi
- Fljótspilaður – fullkominn í styttri golfdaga
- Mjög stöðugt ástand á flötum
Los Palos er einn af þeim völlum sem þú spilar „bara til gamans“… en endar á að taka mjög alvarlega.
Fyrir hvaða golfara hentar Los Palos?
Los Palos Golf hentar sérstaklega:
- Byrjendum sem vilja læra rétta tækni í stuttaspili
- Reyndum golfurum sem vilja skerpa á nákvæmni
- Golfurum sem hafa lítinn tíma en vilja samt gæðagolf
- Pörum og hópum sem vilja afslappaðan, skemmtilegan hring
Þetta er líka frábær völlur daginn fyrir eða eftir stóran championship-völl.
Aðstaða og þjónusta
- Gott æfingasvæði þar sem er hægt að slá í Trackman
- Flottar flatir í stöðugu ástandi
- Vinaleg og afslöppuð stemning
- Auðvelt að ganga völlinn (engin þörf á golfbíl)

Staðsetning
Los Palos Golf er staðsettur á suðurhluta Tenerife, rétt ofan við Costa Adeje. Stutt akstursleið frá flestum gistisvæðum á suðursvæðinu gerir völlinn einstaklega aðgengilegan – sérstaklega fyrir morgun- eða síðdegishring.




