Golf del Sur

Golf del Sur er einn sérkennilegasti golfvöllur Tenerife – þekktur fyrir svartar sandgryfjur úr eldfjallasandi, opið sjávarlandslag og vind sem hefur raunveruleg áhrif á leikinn. Þetta er völlur með sterkan karakter, þar sem náttúra og hönnun vinna saman og skapa golfupplifun sem er ólík flestum öðrum völlum á eyjunni.

Yfirlit vallarins

Golf del Sur er 18 holu par-72 golfvöllur, upphaflega hannaður af Pepe Gancedo, með síðari endurhönnun og uppfærslum sem hafa gert völlinn bæði sanngjarnari og skemmtilegri í spilun. Völlurinn liggur í opnu landslagi við ströndina, sem þýðir að vindur er alltaf hluti af leiknum – stundum augljós, stundum lúmskur.

Layoutið er fremur flatt miðað við marga aðra velli á Tenerife, en breiðar brautir, strategískar sandgryfjur og vel varðar flatir tryggja að þú þarft að hugsa hvert högg.

Hvað gerir Golf del Sur sérstakan?

Golf del Sur er oft vanmetinn af þeim sem horfa aðeins á útlitið – en fyrir golfara sem kunna að meta taktík og aðlögun að aðstæðum, er þetta mjög skemmtilegur og heiðarlegur völlur.

Fyrir hvaða golfara hentar Golf del Sur?

Golf del Sur hentar sérstaklega vel:

Byrjendur finna hér pláss til að anda, en betri golfarar þurfa að halda haus ef þeir ætla að skora lágt – sérstaklega þegar vindurinn fer að láta á sér kræla.

Aðstaða og þjónusta

Golf del Sur

Staðsetning

Golf del Sur er staðsettur í San Miguel de Abona, rétt við Tenerife South Airport (TFS). Aksturstíminn er stuttur frá flestum gistisvæðum á suðurhluta eyjarinnar, sem gerir völlinn einstaklega þægilegan í dagsferð eða sem hluta af golfpakka.

Heimasíða